Laust starf ritara
Laust er til umsóknar starf ritara til að starfa með s.k.
„Resident Twinning Advisor (RTA)“ í erlendu verkefni.
Verkefnið heitir„Institutional and laboratory capacity building to ensure food safety“ og mun standa yfir í 12 mánuði. Aðsetur mun vera hjá Matís ohf. Í Reykjavík og mun starfið helst felast í að aðstoða RTA við að samhæfa heimsóknir þýskra sérfræðinga til Matís og MAST (Matvælastofnunar). Gerð er krafa um ritfærni og góða kunnáttu í þýsku, íslensku og ensku. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni:
- Aðstoða RTA við stjórnsýslu og skipulag verkefnisins í heild
- Skipuleggja ferðalög RTA og þýskra sérfræðinga
- Aðstoð með tungumál og þýðingar RTA og þýskra sérfræðinga
- Skipulagning funda og ráðstefna
- Samantekt á gögnum og skýrsluskrif
- Þýðingar (íslenska/enska, enska/íslenska)
Nánari upplýsingar:
http://www.eurojobs.com/en/candidate/job/Assistant-to-the-Resident-Twin_Reykjavik_IS_3004130.html