Aukið virði sjávarfangs: FisHmark-hugbúnaður
Með þessum nýja hugbúnaði er hægt að:
- Auka virði sjávarfangs og tryggja aðgang inn á kröfuharða sérmarkaði
- Greina hvaða þættir hafa áhrif á virði sjávarfangs og afkomu fiskveiða og fiskvinnslu
- Búa til tillögur að hagkvæmasta fyrirkomulagi að veiðum og ráðstöfun afla
- Auðvelda fiskseljendum að miðla upplýsingum um vöru, svo sem um uppruna hennar
- Tengja saman gögn úr rafrænum afladagbókum, mælingum í móttöku og úr upplýsingakerfum um vinnslu og markað
- Leita hagkvæmustu lausna í virðiskeðju þorskafurða og auka hagnað fyrirtækja