Smábátar - Hámörkun aflaverðmætis
Markmið verkefnisins er að stuðla að bættri meðferð þess hráefnis sem veitt er af smábátum þannig að hægt verði að nýta það í sem verðmætastar afurðir.
Markmið verkefnisins er að stuðla að bættri meðferð þess hráefnis sem veitt er af smábátum þannig að hægt verði að nýta það í sem verðmætastar afurðir. Leitast verður við að auka gæðaímynd smábátafisks með því að sýna fram á góða almenna umgengni um aflann, sérstaklega hvað varðar kælingu um borð. Þeir aðilar sem málið varðar verða uppfræddir um mikilvæg atriði sem áhrif hafa á gæði hráefnisins, auk þess sem gefnar verða út leiðbeiningar um hráefnismeðferð.
Starfsmaður
Styrkt af
- AVS - rannsóknasjóður í sjávarútvegi
Samstarfsaðilar
- Landssamband smábátaeigenda
- Reiknistofa Fiskmarkaða
- Sjávariðjan Rifi hf.
- Breiðavík ehf.
- Sólrún ehf.
- Jakob Valgeir ehf.